Jigsaw Planet from Sigurdur Jonsson on Vimeo.

Jing

Séreignahugbúnaður Verkfæri
Vefslóð

Jing er nafnið á einfaldri en mjög sniðugri blöndu af Snagit og Camtasia hugbúnaðinum vinsæla sem Techsmith fyrirtækið gefur út. Jing er notað til þess að taka skjámyndir eða stutt myndskeið og miðla til notenda.

Jing hugbúnaðurinn er ókeypis (óvíst hvort hann verði það í framtíðinni) en skjámyndirnar og myndskeiðin eru hýst á Screencast.com vefnum (í eigum Techsmith) en áskrift að honum er gjaldskyld. Hægt er að sækja um 60 daga prufuáskrift til að reyna þjónustuna.

Screencast.com vefurinn er að mínu mati veikasti hlekkurinn í þessari annars skemmtilegu samsetningu á hugbúnaði og netþjónustu þar sem hann er arfaslakur svo ekki sé sterkara til orða tekið. Jing býður reyndar einnig upp á staðværa vistun á myndum og myndskeiðum sem er ágætis kostur fyrir þá sem vilja geyma efni á eigin vél en vistar myndskeiðin á swf sniði (flash) og ég veit ekki til þess að YouTube og sambærilegar þjónustur samþykki það skráarform. Ég veit að það er ekkert tiltökumál að yfirfæra swf skrár á t.d. avi eða flv (flash video) snið en þar með einfaldleiki Jing fokinn út í veður og vind.

Jing er frábært verkfæri fyrir kennara í upplýsingatækni og kannski sérstaklega þá sem kenna í fjar- og dreifnámi. Jing getur örugglega komið sér vel fyrir kerfisstjóra og aðra sem aðstoða tölvunotendur þar sem það einfaldar hinum almenna notanda að senda skjámyndir til skýringa á vandamálum eða villum og kerfisstjórum að senda myndrænar skýringar til baka. Ég mun alveg örugglega nýta þetta forrit í minni kennslu enda koma oft upp tilvik þar sem ég þarf að setja saman og senda stuttar leiðbeiningar til nemenda. Ég mun áfram nota bæði Snagit og Camtasia hugbúnaðinn sem einnig kemur frá Techsmith og þá sérstaklega í viðameiri verkefnum og námsefnisgerð.