Jigsaw Planet from Sigurdur Jonsson on Vimeo.

KompoZer

Opinn hugbúnaður
Vefslóð

Kompozer vefsmiðurinn er opinn hugbúnaður í anda Dreamweaver. Hann er skilgetið afkvæmi Nvu sem þótti nokkuð frambærilegur hugbúnaður lengi vel, þ.e. allt þar til Linspire Inc hætti þróun á honum árið 2006

. Kompozer byggir á Gecko vélinni sem grundvallar Mozilla Firefox vefskoðarann og notendaviðmótið er ekki ósvipað og í eldri útgáfum af Dreamweaver.

Kompozer er vitaskuld langt því frá sömu eiginleikum gæddur og hinn dýrkeypti Dreamweaver frá Adobe. Vitaskuld segi ég vegna þess að Adobe hefur yfir að ráða her vel launaðra forritara sem leggja að sjálfsögðu metnað sinn og fagmennsku í að þróa þennan besta vefsmið sem völ er á. Sem er að sjálfsögðu hið besta mál og ekkert út á það að setja.

Hitt er annað mál að Kompozer hentar afskaplega vel til þeirra smáverka sem ég áður leysti með Dreamweaver. Ég mæli því hiklaust með Komposer þrátt fyrir að forritið sé enn sem komið er einungis í útgáfu 0.8. Það getur einungis batnað.

Kompozer er til fyrir bæði Linux og Windows stýrikerfin á hinum ýmsu tungumálum (ekki íslensku því miður). Það er kjörið í skólastarfi.