Jigsaw Planet from Sigurdur Jonsson on Vimeo.

Sýndarpíanó

Séreignahugbúnaður
Vefslóð

Virtual Piano er vandað og skemmtilegt sýndarhljóðfæri á vefnum sem ég er handviss um að komið getur að gagni í skólastarfi. Sýndarpíanóið hljómar mjög eðlilega og hægt er að nota bæði mús og lyklaborð til þess að leika á það.

Einfalt er að kalla fram nótur til að spila eftir. Reyndar ekki hefðbundin nótnablöð þar sem þau koma að takmörkuðu gagni þegar leikið er með lyklaborðinu. Ég prufaði að leika nokkur lög eftir nótum sem fylgja forritinu og gekk það bara ágætlega. Ég komst t.d. að því að svona sýndarhljóðfæri er ágætis æfing í vélritun, þ.e. þegar leikið er eftir nótum.