Jigsaw Planet from Sigurdur Jonsson on Vimeo.

ZoomIt

Séreignahugbúnaður
Vefslóð

ZoomIt er handhægur hugbúnaður fyrir þá sem nota tölvu með Windows stýrikerfi til kynninga eða kennslu á hugbúnaði. Zoomit stækkar allt sem á skjánum birtist og gerir notendum þar að auki kleift að skrifa og teikna yfir skjáinn.

ZoomIt má sækja án endurgjalds á Microsoft Technet vefinn. Forritið er ein keyrsluskrá (sótt á zip sniði) og til að virkja það verður að tvísmella á skránna. Hægt er að búa til flýtivísun á ZoomIt og setja í Startup möppuna í Windows þannig að forritið keyri sjálfkrafa upp í hvert sinn sem Windows er ræst.
Sjálfgefnar flýtivísanir í ZoomIt eru eftirfarandi (hægt er að skilgreina eigin samsetningar á flýtilyklum):

  • CTRL+1 Stækkar skjámyndina
  • Hægt að nota skrunhnappinn á músinni til að stækka/minnka
  • Vinstri músarsmellur virkjar pennan
  • CTRL+2 Penninn virkjaður án þess að stækka skjámyndina
  • Hægri músarsmellur minnkar skjámyndina aftur í raunstærð
  • CTRL+T til að slá inn texta (ath. að smella fyrst á vinstri músarhnapp)

Ath. vandamál með ísl. bókstaf
Ég mæli með Zoomit fyrir tölvukennara og auðvitað aðra þá sem sýna hugbúnað eða vefi.