Jigsaw Planet from Sigurdur Jonsson on Vimeo.
Jigsaw Planet
Jigs@aw Puzzle er að mínu viti eitt besta forrit sem völ er á til að búa til og leika með stafræn púsluspil. Nýlega rakst ég á netlæga útgáfu af Jigs@w Puzzle sem inniheldur reyndar ekki alla eiginleika upprunalega forritsins en er þó glettilega góð.
Netlæga útgáfan af Jigs@w Puzzle nefnist Jigsaw Planet og býðst þar hverjum sem vill að setja saman púsluspil úr stafrænum myndum eigin eða annarra. Púsluspil sem búin eru til á Jigsaw Planet er hægt að spila á staðnum, senda til vina og kunningja eða varpa á vefinn að vild.
Þegar búin eru til púsluspil á Jigsaw Planet er hægt að velja um 7 stærðir af púsluspilum með 10 til 120 púslum. Einnig er hægt að velja um 8 mismunandi útlit á sjálfum púslunum, þ.e. einstaka bútum. Leikinn má svo gera erfiðari með því að heimila spilurum að snúa púslunum (notið örvatakka á lyklaborðinu til þess). Hér má sjá sýnishorn af stjórnborðinu.
Púsluspilið hér fyrir neðan bjó ég til úr stafrænni ljósmynd sem dóttir mín tók. Ég valdi púsl með 40 bitum sem hægt er að snúa.
Hér er bein slóð að sama púsluspili. Ég komst að því þegar ég bjó þetta púsl til að innsendar myndir mega ekki vera stærr en 3MB. Ekki þarf að búa til sérstakan aðgang þegar púsl er búið til sem þýðir væntanlega að notendur munu ekki hafa yfirlit yfir þau púsluspil sem þeir hafa búið til. Ég hef ekki hugmynd um hversu lengi hvert spil er varðveitt í vefþjónum þjónustuaðila.
