Noteflight

Noteflight

Noteflight er einstakur, netlægur hugbúnaður sem ég er viss um að mun gleðja mjög tónmenntakennara og aðra sem hafa áhuga á tónlist og tónsmíðum. Noteflight er öflugur vettvangur til að skapa, skrá og miðla tónsmíðum.

Notendur á Noteflight geta skapað þar eigin tónlist í öflugum nótnaritli. Þeir hafa aðgang að fjölmörgum hljóðfærum og geta hlustað á tónsmíðarnar um leið og þær verða til. Noteflight er einnig kjörin staður til þess að hlusta á tónlist eftir aðra, popp, rokk og klassíska. Úrvalið af tónsmíðum á Noteflight er mikið og fer stöðugt vaxandi.

Leave a Reply