Jigsaw Planet from Sigurdur Jonsson on Vimeo.
Quizlet
Tungumálakennarar ættu hiklaust að kynna sér Quizlet en þar er á ferðinni netbundin þjónusta sem gerir þeim (og auðvitað öllum öðrum líka) kleift að setja saman orðalista og leggja fjölbreyttar æfingar fyrir nemendur.
Quizlet er dæmigerður web 2.0 vefur þar sem notendur geta deilt með sér orðalistum og æfingum sem þeir hafa skapað. Quizlet er einfalt í notkun og opið öllum en innskráning veitir notendum aukna möguleika. Öll notkun Quizlet er endurgjaldslaus.
Ég get vel ímyndað mér að Quizlet komi að góðum notum fyrir nemendur sem vilja æfa sig fyrir próf heima í tölvunni eða tölvuveri skólans. Kennarar gætu jafnvel látið nemendur vinna orðalista.
Flokkun: Enska Framhaldsskóli Grunnskóli Háskóli Séreignahugbúnaður Sérkennsla Verkfæri Íslenska Þjónusta á Netinu
