Tuxpaint

Tuxpaint

Tuxpaint er stórsniðugt teikniforrit sem er sérstaklega hannað með yngri notendur í huga. Það er því óhætt að mæla með því fyrir leikskóla og nemendur í yngri bekkjum grunnskólans.

Tuxpaint hefur fengið einróma lof notenda enda einfaldleikinn í fyrirrúmi. Hér fyrir neðan má sjá notendaviðmót forritsins. Vinnusvæðið er í miðjunni, vinstra megin má finna teikniverkfærin og hægra megin birtast svo frekari stillingar eða valkostir tengdir hverju einstaka verkfæri (þegar við á). Skemmtileg hljóð fylgja verkfærunum þegar þau eru notuð (hægt að hækka/lækka innan forritsins)

Tuxpaint er til á fjölda tungumála og þar á meðal íslensku. Ekki þarf að sækja íslensku þýðinguna sérstaklega. Íslenska þýðingin er unnin af Pjetri G. Hjaltasyni. Hún er góð en ennþá eru nokkrir textastrengir óþýddir.
Tuxpaint má sækja án endurgjalds á vefnum www.tuxpaint.org, enda um opinn hugbúnað að ræða. Tuxpaint er fáanlegt fyrir Linux, Mackintosh og Windows stýrikerfi (og fleiri reyndar).

Leave a Reply