Jigsaw Planet from Sigurdur Jonsson on Vimeo.

Dropbox

Dropbox er miðlæg hýsingarþjónusta á Netinu þar sem notendur skrá sig fyrir aðgangi og fá fyrir vikið 2GB geymslupláss fyrir hvers kyns skrár. Hægt er að auka við geymsluplássið með því að vísa öðrum á þjónustuna eða greiða fyrir meira pláss.

Dropbox er líklegast ein handhægasta lausn sinnar tegundar enda nýtur þjónustan gríðarlegra vinsælda. Dropbox er sérlega einfalt í notkun. Þegar notandi hefur skráð sig fyrir aðgangi getur hann sent og sótt skrár á Netið, annað hvort í gegnum aðgengilegt vefviðmót eða sótt til þess sérstakan hugbúnað.

Notendaviðmót Dropbox

Þegar hugbúnaðurinn er sóttur verður þjónustuan enn auðveldari og þægilegri í notkun. Þá þarf einungis að vista skrár í ákveðna möppu (sem getur innihaldið undirmöppur) í tölvunni og þær eru sjálfkrafa vistaðar á Netinu ásamt því að vera hýstar í tölvu viðkomandi notanda. Forritið má einnig setja upp á fleiri tölvum þannig að þegar skrá er vistuð í einni vél þá færist hún sjálfkrafa á Netið en einnig sjálfvirkt yfir í Dropbox möppuna í öðrum vélum þar sem forritið er uppsett og aðgangur að Dropbox skráður.

Dropbox er því kjörin vettvangur fyrir kennara og aðra sem vilja hafa örugga geymslu fyrir gögnin sín og aðgang að þeim hvar og hvenær sem er.