Jigsaw Planet from Sigurdur Jonsson on Vimeo.

Google Earth

Séreignahugbúnaður Landafræði
Vefslóð

Google Earth er sýndarheimur sem endurskapar jörðina í þrívídd. Google Earth byggir á gervihnattamyndum, ljósmyndum og landfræðigögnum. Google Earth gerir notendum kleift að kanna jörðina, höfun og heimingeiminn á einstakan hátt.

Google earth er án nokkurs vafa ótrúlegt verkfæri í höndum skapandi kennara og nánast himnasending fyrir alla þá sem áhuga hafa á því að hagnýta upplýsingatæknina í námi og kennslu.

Á umræðuvefnum bbs.keyhole.com má finna samfélag Google earth notenda og geta allir sem vilja skráð sig þar inn og tekið þátt í samræðunni. Á umræðuvefnum kennir ýmissa grasa en þar má m.a. finna umræður sem snúa að námi og kennslu undir liðnum “Education”.

Auk áhugaverðra umræðna, ábendinga og hugmynda má sækja á umræðuvefinn fjöldan allan af spennandi efni sem þátttakendur á bbs.keyhole.com vefnum hafa gert aðgengilegt. Efnið er í formi kmz skráa sem sóttar eru (eða tvísmellt á “Open this Placemark” krækjuna fyrir neðan titil innleggsins) og þær síðan opnaðar í Google earth forritinu.