ArtRage
Posted by admin on Oct 25, 2010 in Athygli vekur, Framhaldsskóli, Grunnskóli, Leikskóli, Myndmennt, Myndvinnsla, Séreignahugbúnaður | 13 comments
Artrage teikniforritið er í senn aðgengilegt og einfalt í notkun sem gerir það sérlega góðan valkost fyrir kennara sem hafa áhuga á því að nýta slíkt verkfæri. Artrage er hannað með það í huga að herma eftir alvöru teikniverkfærum eins og kostur er.
Útgáfan af Artrage sem hægt er að sækja og nota endurgjaldslaust heitir ArtRage 2 starter edition. Hún er sýnisútgáfa af ArtRage 2.0 með takmarkaðri eiginleikum. Sýnisútgáfan rennur hins vegar aldrei út á tíma og þrátt fyrir allar takmarkanir þá er hér á ferðinni sérdeilis skemmtilegt teikniforrit.

ArtRage 2.0 starter edition inniheldur m.a 8 teikniverkfæri (Það eru 12 í stærri útgáfunni) og til dæmis má breyta áferð “pappírsins” sem teiknað er á og sækja t.a.m. ljósmynd og nota sem fyrirmynd þegar teiknað er. Hægt er að vista teikningar. ArtRage hentar einstaklega vel til að nota með teikniborðum.
Þegar þetta er skrifað er komin út útgáfa 3.0 af ArtRage. Fyrir hana þarf að greiða.
