Um Opnar lausnir
Opnar lausnir er vefur þar sem kennarar, nemendur og aðrir sem áhuga hafa geta fundið upplýsingar um hugbúnað og netbundnar þjónustur sem hægt er að nýta án endurgjalds í námi og kennslu.
Vefurinn er skipulagður þannig að auðvelt er að leita að efni eftir námsgrein, skólastigi eða tegund. Einnig er hægt að slá inn leitarorð í leitarbox.
Verkfæri fyrir kennara.
Vefurinn er stofnaður og unnin með styrk úr þróunarsjóði námsgagna.
